Lögreglan biður ökumenn um að sýna biðlund og að virða lokunina á Reykjanesbrautinni. Eitthvað mun vera hægt að beina bílum um hjáleið en umferð gengur ákaflega hægt
Þessi setning í lok fréttarinnar situr í mér , af hverju þarf að biðja ökumenn að sýna biðlund ??? Það á að vera sjálfsagður hlutur!!!
Er fólk búið að týna náungakærleiknum og virðinguna fyrir lífi annara ???
Það á ekki að þurfa að biðja fólk um að leyfa lögreglu og sjúkrafluttningsmönnum að vinna vinnuna sína við að bjarga fólki úr slysum !!!
Sorgleg þróun í Íslensku samfélagi !!!
Annars er orðið nokkuð langt síðan að fréttir hafa borist af slysi á Reykjanesbrautinni . Eftir að hluti hennar var tvöfaldaður hefur slysatíðni minnkað verulega og þar hefur ekki orðið banaslys frá því að tvöfölduð braut var vígð.
Ökum varlega kæra fólk og berum virðingu fyrir lífinu og náunganum
Alvarlegt umferðarslys á Reykjanesbraut | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 6.12.2007 | 18:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Stálu sextán tonnum af skinku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 3.12.2007 | 17:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vann yfir sig og dó | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 3.12.2007 | 16:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
AÐ bæjarstjórnin asnist til að gera eitthvað í þessum gatnamálum hjá sér :(
það eru nú miklu miklu fleiri en þessi eina gata sem er stórhættuleg og alltof margir sem nota þessar götur sem spyrnubrautir !!!!
Held að Bæjarstjórnin í Keflavík ætti að fara að hífa upp um sig brækurnar og hætta að velta sér uppúr enskinsverðum málum , taka til hendinni og laga göturnar í bænum svo hægt sé að stöðva þessa ökuníðinga sem leika sér á götum bæjarins !!!
Einn punktur í þessu er líka sá að lögreglan má láta sjá sig á öðrum götum en aðalgötunum !! það er ekki bara keyrt hratt þar !!!
Sorglegt er samt að lítill drengur skuli þurfa að láta lífið til að stóru kallanir vakni !!!
Stöndum saman suðurnesjamenn og stöðvum þettað !!! við höfum barist fyrir stærri verkefnum með góðum árangri (reykjanesbrautar lokunin gerði sitt) stöndum saman og fáum öruggari götur !!!! (hvað með að loka aðalgötunum !!! ) loka götunni þar sem árni býr !!! við getum gert miklu miklu meir en að loka einni götu !!!
Þettað verður að vera gert svo tekið sé eftir því !!!!!
Við viljum ekki sjá annað svona slys í götunni okkar“ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 3.12.2007 | 15:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Finn harkalega til með stúlkunni og vona að hún jafni sig á þessari lífsreynslu. Afskaplega Hljóta þessir menn samt að eiga erfitt líf ;(
http://mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1306741
Ráðist á íslenska stúlku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 3.12.2007 | 15:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Er fólk í alvöru svona vitlaust.........
Nauðsynlegar leiðbeiningar.
Leiðbeiningar aftan á þekktri "meik" tegund: "Do not use on children under 6months old.".
Auðvitað byrjar maður ekki að mála börnin sín fyrr en þau eru orðin 7 mánaða.
Leiðbeiningar á Sears hárblásurum: "Do not use while sleeping"
Einmitt tíminn sem ég nota til að blása á mér hárið!!
Þetta stóð á umbúðum utan af Dial sápu: "Use like regular soap"
Og hvernig á aftur að nota svoleiðis?
Á umbúðum af SWANN frystimat: "Serving suggestion: Defrost"
Mundu samt ... þetta er bara uppástunga.
Hótel lét baðhettu í boxi fylgja með hverju herbergi, og á boxinu stóð: "Fits one head."
Sérðu ekki fyrir þér ... einhverja tvo vitleysinga ... með eina baðhettu
Á botninum af Tiramisu dessertinum frá Tesco stendur: "Do not turn upside down".
OF seinn ... þú tapaðir.
Þetta stendur á búðing frá Marks & Spencer: "Product will be hot after heating"
Jæja ....er það!!!!
Á pakkningum af Rowenta straujárni: "Do not iron clothes on body."
En myndi það nú ekki spara mikinn tíma.
Á hóstameðali fyrir börn frá Boots: "Do not drive car or operate- machinery."
Ég sem læt einmitt börnin mín alltaf keyra heim!!
Á flösku af "Nytol sleep aid" má sjá þetta: "Warning: may cause drowsiness."
Maður skyldi nú rétt vona það!
Hnífasett frá Kóreu var merkt þannig: "Warning keep out of children."
Ókíííí .......
Jólasería frá Kína var merkt á eftirfarandi hátt: "For indoor or outdoor use only."
En ekki hvar ... ???
Matvinnsluvél frá Japan var merkt svona: "Not to be used for the other use."
Ok .. núna er ég orðinn mjög forvitinn.
Hnetupoki frá Sainsburys: "Warning: contains nuts."
Jamm ... ég fer mjög varlega.
Á poka af hnetum frá Amerísku flugfélagi stóð þetta:
"Instructions: open packet, eat nuts."
Imbafrítt eða hvað?
Leiðbeiningar sem voru á miða með blá, hvít og rauðköflóttri skyrtu segir: "Munið að þvo liti aðskilda".
Ehhh ... já ... áttu nokkuð skæri.
Leiðbeinginar á ónefndu örbylgju- poppi segja manni að taka plastið af áður en sett er í örbylgju".
Málið er, að til að geta lesið leiðbeiningarnar verður að vera búið að taka plastið af og fletta pokanum í sundur
Framan á kassa af "Töfradóti" fyrir krakka, er mynd af strák sem er klæddur eins og töframaður. Aftan á kassanum stendur: "Notice,little boy not included".
Ohhhhhh ....... mig sem langaði svo að eiga einn strák hehe
Ég keypti svona kisunammi fyrir köttinn minn. Á pokanum stendur new and improved shapes".
Ahaaa ... einmitt það sem kötturinn minn er búinn að vera að nöldra útaf.
Lítill miði var festur á "Superman" búning. Á honum stóð: "
WARNING: THIS CAPE WILL NOT MAKE YOU FLY".
Núúúú ... þá kaupi ég hann ekki.
Á flösku af linsu-hreinsi stendur "Remove lenses from eyes before cleaning".
Sérðu ekki fólk fyrir þér vera að spreyja hreinsiefni í augun.....duhh.
Á keðjusögum stendur oft viðvörunin "Do NOT touch the rotating chain".
Er það ekki nú nokkuð ljóst .. haaa ....
Eitt sem ég skil ekki. "Waterproof" maskarar ... á þeim stendur: "Washes off easily with water".
Hmmm .... hvað er þá málið??
Á hliðinni á flösku af ónefndri rommtegund stendur: "OPEN BOTTLE BEFORE DRINKING".
Maður þarf nú að vera búinn að fá sér þokkalega mikið til að fatta það ekki.
Ein kextegund sem ég kaupi stundum er með fjórum hólfum, og í hverju hólfi eru 3 kexkökur. Sem sagt 12 stykki í hverjum pakka. Þegar ég var að lesa aftan á pakkan tók ég eftir innihaldslýsingu sem segir að það séu "about 12 pieces."
Það eru ekkert u.þ.b. 12 ... það er bara akkúrat 12 ... ekki vesen
Ég var að koma tölvunni minni fyrir á nýjum stað. Kveikti á henni, en gleymdi að tengja lyklaborðið. Ég fékk náttúrulega villuskilaboð: "301: Keyboard bad or missing. Hit the F1 key to continue."
.... þarf ég að segja meira.
Þetta stóð aftan á sótthreinsandi hreinsiefni: "If you can not read English, do not use this product until someone explains this label to you."
Ehhhh ..... okiiiii
Miði sem fylgdi göngugrind fyrir smábörn (þessi sem eru á hjólum svo þau geti rúllað sér áfram) varaði fólk við eftirfarandi: "Do not use this as 1] a snow sled, and 2] a flotation device!"
Hvað er í gangi ... ég meina ... gerði þetta einhver í alvörunni og fór í mál við fyrirtækið ... eða ...
Eftirfarandi viðvörun var límd á glugga sem einn félaginn var að setja upp á heimili sínu: "these screens are an effective means to prevent insects from entering your home. They should, in no way, be considered to be an adequate home security system. "
Nú þá kaupi ég þetta ekki!!
Án gríns ... það eru seldar líkkistur í USA með 50 ára ábyrgð ...
Að sjálfsögðu.Ég meina er fólk að grafa fjölskyldumeðliminn upp og tékka hvernig kistan er og skipta henni út ef hún er illa farin???
Einn sagði mér frá tölvu sem hann hafði keypt. Með henni fylgdi CD-ROM diskur sem átti að leiðbeina honum um uppsetningu á tölvunni. Þegar hann reynir að "keyra" diskinn, fær hann þau skilaboð á skjáinn að CD-ROM drifið sé ekki uppsett .... og hann eigi að skoða leiðbeiningar (sem fylgdu með á CD-ROM disk ........)
Einmitt.
Eitt sinn ákvað kartöfluflögu framleiðandi að vera með smá leik. á pokanum stóð: "no purchase required, see inside of package for details."
Átti maður semsagt að opna pakkann í búðinni og vera tekinn fyrir þjófnað ... eða .....
Þessar leiðbeiningar mátti finna á æfingabekk sem einn félaginn keypti: DO NOT EXERCISE NEAR OPEN FLAME.
Og honum sem finnst svo gaman að æfa nálægt arninum ...
Viðvörun á steríógræjum ... í alvöru: "do not eat or swallow this machine or parts of it.."
Er þetta nú í alvöru nauðsynlegt ... "Ástin ... eigum við ekki
bara að hafa kassettutæki í kvöldmat ..."
Þetta stóð á kítti túpu: Warning: Not for use as earplugs.
Aldrei má maður skemmta sér!!
Þetta stóð í bæklingi með sjónvarpi: "Do not pour liquids into your television set."
Hvað er málið með það?? ég sem helli alltaf restinni af áfenginu yfir sjónvarpið!!!
Ég meina halló......
Bloggar | 2.12.2007 | 13:03 (breytt 3.12.2007 kl. 19:13) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)